Knattspyrnumaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur spilað frábærlega með Lille í Frakklandi að undanförnu en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur tvö til viðbótar í 20 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu
Frakkland
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur spilað frábærlega með Lille í Frakklandi að undanförnu en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur tvö til viðbótar í 20 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Hákon, sem er 21 árs gamall, braut bein í fæti á æfingu íslenska landsliðsins í september á síðasta ári og var frá keppni í rúmlega tvo og hálfan mánuð en hann missti af öllum leikjum Íslands í Þjóðadeildinni síðasta haust, ásamt því missa af tólf leikjum með Lille í öllum keppnum.
Sóknartengiliðurinn er hins vegar kominn aftur á fullt en hann gekk til liðs við franska félagið sumarið 2023 frá Köbenhavn í Danmörku fyrir 17 milljónir evra, Það samsvarar tæplega 2,5 milljörðum
...