Athafnakonur, stjórnendur og leiðtogar úr öllum greinum atvinnulífsins mynda þétt og öflugt tengslanet FKA um land allt. Landsbyggðadeildir FKA eru FKA Austurland, FKA Norðurland, FKA Suðurland, FKA Suðurnes og FKA Vesturland.
Aukið samtal og samstaða er markmið deildanna, fyrir konur sem vilja taka þátt í að kortleggja tækifærin í landsbyggðunum, fóstra nærumhverfið, finna kraftinn og taka höndum saman. Fjölbreytt dagskrá sem samanstendur af fræðslu, skemmtun og tækifærum. Stjórn á hverju svæði greinir þarfir kvenna í sínum landshluta, setja mark sitt á starfið og er frábær vettvangur fyrir konur í atvinnulífinu um land allt – allar landsbyggðirnar.