Umboðsmaður Alþingis (UA) finnur að málsmeðferð og framgöngu ríkisskattstjóra (RSK) í kærumálum þar sem embættið hefur synjað beiðni um endurupptöku máls. Mælist umboðsmaður til þess í sérstöku áliti að ríkisskattstjóri taki mið af tilteknum sjónarmiðum við meðferð beiðna um endurupptöku máls og hugi að hlutverki sínu sem lægra sett stjórnvald þegar um kærumál er að ræða.
Er umboðsmaður ósammála þeirri afstöðu ríkisskattstjóra að synjun um endurupptöku máls feli ekki í sér stjórnvaldsákvörðun og því sé ekki fyrir hendi réttur til að kæra til yfirskattanefndar. Umboðsmaður segir slíka synjun þvert á móti vera stjórnvaldsákvörðun og þar með sé sú ákvörðun kæranleg.
Leiðbeiningar ekki í samræmi við stjórnsýslulög
Jafnframt hafi leiðbeiningar ríkisskattstjóra um rétt til að fá ákvarðanir endurskoðaðar
...