Í síðustu viku mátti sjá í viðtali hér í blaðinu hvernig hið elskulega friðarríki Svíþjóð hefur smám saman orðið fórnarlamb glæpagengja, þannig að með nokkrum ólíkindum hlýtur að vera. Þá var meðal annars haft eftir viðmælandanum: „Manndrápum með skotvopnum hefur fjölgað margfalt hérna í Svíþjóð síðustu ár.“ Sömuleiðis að tölfræðin sýndi, að fyrir áratug hefðu um átta manns verið skotnir til bana þar í landi, en árið 2022 hefði sú tala verið 63! Væri sú tala borin saman við slíkar í nágrannaríkjunum Danmörku, Finnlandi og Noregi til samans hefðu í þeim löndum „aðeins“ tíu manns látist í kjölfar skotárása.
Viðmælandi blaðsins var Diamant Salihu, sem er sagður vera einn helsti sérfræðingur sænska ríkisútvarpsins SVT um þessa ofbeldis- og glæpaöldu, sem sænska þjóðin er sögð hafa mátt sæta misserum saman. Nefnt er að fyrrnefndur heimildarmaður, Salihu, hafi fengið
...