Við höfum sagt það og bentum fyrrverandi heilbrigðisráðherra á að erlendum hjúkrunarfræðingum hefur fjölgað mjög mikið hér á landi,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sviðsljós
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
Við höfum sagt það og bentum fyrrverandi heilbrigðisráðherra á að erlendum hjúkrunarfræðingum hefur fjölgað mjög mikið hér á landi,“ segir Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Mikill meirihluti erlendra hjúkrunarfræðinga á Íslandi kemur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, aðallega Filippseyjum. „Hjúkrunarnámið á Filippseyjum uppfyllir þessa Evrópustaðla sem þarf að uppfylla til að fá leyfi hér á landi og námið er sambærilegt við okkar nám hérlendis,“ segir Guðbjörg.
Hún bendir á að ef hjúkrunarfræðingar, sem koma frá landi þar sem námið uppfyllir ekki þessa reglugerð, vilja sækja um leyfi hér þurfi þeir að bæta við sig því sem
...