Frá stofnun hefur veitingageirinn verið okkar helsti viðskiptavinahópur. Við höfum árum saman starfað með stóreldhúsum, veitingastöðum, hótelum, mötuneytum, börum og kaffihúsum þar sem við höfum lagt áherslu á að veita sérsniðnar lausnir og hágæða vörur og tæki. Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í fjölmörgum stórum verkefnum þar sem við höfum hannað, teiknað og skipulagt eldhús í samstarfi við viðskiptavini okkar. Rétt hönnun og skipulag eldhúsa stuðlar að betri vinnuaðstöðu, auknum afköstum og hámörkun árangurs. Með reynslu okkar og sérþekkingu höfum við skapað traustan grunn fyrir þjónustu okkar,“ segir Guðrún Jóna.
Þróun undanfarinna ára hefur þó víkkað sjóndeildarhringinn. „Við höfum aukið umfang okkar á fyrirtækjamarkaði og bjóðum nú lausnir sem ná út fyrir veitingageirann. Vöruúrval okkar er í hæsta gæðaflokki og byggist á samstarfi við fremstu framleiðendur
...