Dagar eru leiðandi þjónustufyrirtæki í fasteignaumsjón, ræstingum og vinnustaðalausnum. Skýrir verkferlar okkar tryggja framúrskarandi þjónustu og erum við sex öflugar konur sem erum teymisstjórar fyrirtækisins. Við störfum með 19 þjónustustjórum, þar sem konur eru einnig í miklum meirihluta og saman förum við fyrir 700 einstaklingum af 40 þjóðernum,“ segir Drífa K. Guðmundsdóttir Blöndal, teymisstjóri fyrirtækjalausna Daga.
„Við Erna Karen Sigurbjörnsdóttir teymisstjóri ferðaþjónustulausna, Elín Bogga Þrastardóttir teymisstjóri útboðslausna, Hugrún Ásdís Þorvaldsdóttir teymisstjóri Norðurlands, Edda Guðrún Gísladóttir teymisstjóri heilbrigðislausna og Guðbjörg Torfadóttir teymisstjóri fasteignaumsjónar hittumst reglulega á fundum og nýtum okkur styrkleika og hugmyndir hver annarrar. Það endurspeglar menninguna hjá Dögum þar sem svo margt byggist á trausti og
...