Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni FKA sem hefur þann tilgang að auka jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi og eru öll hvött til að kynna sér verkefnið á heimasíðu FKA. Árlega veitir Jafnvægisvogarráð viðurkenningar þeim aðilum sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar. Frá árinu 2020 hafa tré verið gróðursett í Jafnréttislundi FKA að ráðstefnu lokinni, eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa, og trén orðin tæplega þrjú hundruð talsins. Alls konar tegundum hefur verið plantað sem er táknrænt fyrir þann fjölbreytileika sem FKA vill stuðla að með Jafnvægisvoginni. Í framtíðinni verður hægt að fara í skógarbað í Jafnréttislundinum góða sem stækkar með hverju árinu. Skógræktarfélag Reykjavíkur úthlutaði félaginu landnámsspildu við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin.
Hvetjum öll til að kíkja við!