Starfsemin skapar um eins milljarðs króna ávinning árlega fyrir hið opinbera og hann er þrisvar sinnum meiri en sú upphæð sem Ljósið fékk frá ríkinu í fyrra.
Erna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Ljóssins hefur fylgt heilbrigðisstofnuninni eftir frá upphafi. Ávinningur ríkisins af starfsemi Ljóssins er mikill eins og fram kemur í viðtalinu.
Erna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Ljóssins hefur fylgt heilbrigðisstofnuninni eftir frá upphafi. Ávinningur ríkisins af starfsemi Ljóssins er mikill eins og fram kemur í viðtalinu. — Morgunblaðið/Hákon

Ljósið sinnir endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda, sem er lykilhluti af heilbrigðiskerfinu auk þess að veita stuðning við aðstandendur þeirra,“ segir Erna Magnúsdóttir framkvæmdastýra Ljóssins.

Ljósið er að sögn Ernu hagkvæmt úrræði sem léttir álagi af öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins svo sem Landspítala og heilsugæslu. „Ljósið veitir heilbrigðisþjónustu sem unnin er meðal annars af heilbrigðismenntuðu starfsfólki og hefur til þess leyfi frá Landlæknisembættinu. Við getum verið stolt af starfsemi Ljóssins síðastliðin 20 ár sem hófst sem grasrótarstarf,“ segir Erna, sem hefur staðið í brúnni frá upphafi. Hún segir það hafa verið mikla áskorun en á sama tíma mjög lærdómsríkt. „Það er yndislegt að geta horft til baka og er ég þakklát fyrir að hafa getað verið til staðar fyrir stóran hluta þeirra Íslendinga sem greinst hafa með

...