Stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, er skipuð sjö konum og þremur til vara. Hver stjórnarkona skal kjörin til tveggja ára í senn og í varastjórn veljast konur til eins árs. Á hverjum aðalfundi er kosið um þrjú stjórnarsæti og þrjú í varastjórn og formannskjör fer fram annað hvert ár.
Á aðalfundi 22. maí nk. verður kosið um formann og félagskonur eru hvattar til að máta sig við hlutverkið sem er kröftugt, fjölbreytt og gefandi þar sem konum gefst kostur á að skrifa sig inn í söguna, hafa áhrif og þónokkurt dagskrárvald. Unnur Elva Arnardóttir var kjörin formaður FKA á aðalfundi 2023.