Annar af tveimur borum Jarðborana á Filippseyjum er að störfum í 1.800 metra hæð yfir sjávarmáli, á hæsta fjalli landsins. Þetta segir Egill Arnar Sigurþórsson rekstrarstjóri í samtali við ViðskiptaMoggann.
Egill hóf störf á Filippseyjum í byrjun ágúst sl. Borinn var fluttur í skipi frá Íslandi í apríl 2024. Seinni borinn bættist svo við í ágúst og kom frá Nýja-Sjálandi.
„Við erum að vinna á stærsta háhitasvæði Filippseyja. Við erum að gera það sem við kunnum best og höfum gert í áratugi, að bora djúpar háhitaholur til að framleiða rafmagn,“ útskýrir Egill.
Jarðboranir eru með skrifstofu í Manilla, höfuðborg Filippseyja. Þar starfar Egill. „Við erum að bora á tveimur eyjum sunnarlega í landinu. Annar staðurinn er í fjallshlíð í 1.800 metra hæð yfir sjávarmáli á hæsta fjalli
...