Hjá ELKO eru tækifæri til lærdóms og vaxtar og vinnustaðurinn er skemmtilegur.

Ég ólst upp í Bolungarvík en var alltaf staðráðin í að fara í Verzlunarskóla Íslands, eins og faðir minn, Jón Þorgeir Einarsson, gerði. Ég var svo heppin að foreldrar mínir studdu mig og hjálpuðu mér að láta þann draum rætast. Þannig að úr varð að ég flutti ein í bæinn 16 ára gömul,“ segir Ingibjörg Þórdís Jónsdóttir, forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar hjá ELKO.

„Sem unglingur vann ég í frystihúsinu og fann strax hvað mér þótti framleiðsla spennandi. Þessi reynsla kveikti áhuga minn á verðmætasköpun og leiddi til þess að ég ákvað að fara í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands þaðan sem ég lauk meistaraprófi árið 2012,“ segir Ingibjörg. „Eftir námið hóf ég störf hjá 66°Norður sem verkefnastjóri á framleiðslusviði þar sem ég lærði gríðarlega mikið á þeim fjórum skemmtilegu árum sem ég starfaði þar. Þaðan lá leiðin til Össurar, fyrst sem innkaupasérfræðingur

...