Hjördís Birna segir að alþjóðleg fyrirtæki geti sniðið málsmeðferðina hjá gerðardómi ICC að sínum þörfum, sem spari bæði tíma og peninga.
Hjördís Birna segir að alþjóðleg fyrirtæki geti sniðið málsmeðferðina hjá gerðardómi ICC að sínum þörfum, sem spari bæði tíma og peninga. — Ljósmynd/Aðsend

Hjördís Birna hlaut nýlega viðurkenningu sem framtíðarleiðtogi á sviði alþjóðlegs gerðarréttar frá einum stærsta rannsóknarmiðli á sviði lögfræði á heimsvísu, Lexology. Hjördís segir tilnefninguna byggða á umsögnum frá skjólstæðingum og sérfræðingum sem starfi innan sama geira.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?

Gerðardómur Alþjóðaviðskiptaráðsins (ICC) er leiðandi á heimsvísu á sviði alþjóðlegrar gerðarmeðferðar og sá gerðardómur sem alþjóðleg fyrirtæki kjósa helst til að leysa úr sínum viðskiptadeilum. Á hverju ári eru á bilinu 800-900 ný mál skráð hjá dómnum og það eru mál á milli fyrirtækja frá öllum heimshlutum og á öllum sviðum viðskiptalífsins.

Það er auðvitað áskorun að vera stöðugt á tánum, viðhalda forystunni andspænis aukinni samkeppni og mæta

...