Ótrúlegur fimm marka lokasprettur færði Króötum, undir stjórn Dags Sigurðssonar, magnaðan sigur á Ungverjum, 31:30, í Zagreb í gærkvöld og sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts karla í handknattleik
HM í handbolta
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ótrúlegur fimm marka lokasprettur færði Króötum, undir stjórn Dags Sigurðssonar, magnaðan sigur á Ungverjum, 31:30, í Zagreb í gærkvöld og sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts karla í handknattleik.
Ungverjar virtust með pálmann í höndunum eftir sveiflukenndan baráttuleik þegar þeir voru komnir í 30:26 skömmu fyrir leikslok.
En með gífurlegri seiglu náðu Króatar að jafna metin í 30:30 og Marin Sipic skoraði síðan sigurmarkið úr hraðaupphlaupi þegar ein sekúnda var eftir af leiknum.
Filip Glavas, sem jafnaði, 30:30, úr vítakasti mínútu fyrir leikslok, skoraði sex mörk fyrir Króata, Sipic og Zvonimir Srna fimm hvor, en Zoran Ilic skoraði
...