Sorg skyggði á hátíðahöld hindúa í borginni Prayagraj í gærmorgun, en að minnsta kosti 30 manns létu þá lífið þegar þeir tróðust undir mannþröng, sem vildi komast að hinum helgu fljótum, Ganges og Yamuna, um morguninn. Braust mannfjöldinn í gegnum lokanir lögreglu og streymdi yfir pílagríma sem sváfu eða sátu við árbakkann.
Kumbh Mela-trúarhátíðin fer nú fram í Prayagraj, en hún felur meðal annars í sér að pílagrímar baða sig þar sem fljótin tvö mætast. Gerðu skipuleggjendur ráð fyrir að allt að 400 milljón manns myndu sækja hátíðina í ár, en hún telst þá stærsta samkoma sögunnar.
Vaibhav Krishna, yfirlögregluþjónn í Prayagraj, greindi frá því í gærkvöldi að 90 manns hefðu verið fluttir á sjúkrahús eftir troðninginn, en að því miður hefðu 30 þeirra beðið bana. Gagnrýndi stjórnarandstaðan á Indlandi skort á upplýsingum um slysið, en Krishna
...