Bresk yfirvöld höfðu ákveðið að Mandelson lávarður skyldi verða sendiherra Breta í Washington. En lávarðurinn var þekktur á stjórnmálaárum sínum fyrir að hafa verið alræmdur og óvarkár „kjaftur“ og látið margt vaða um andstæðinga sína, innanlands og utan.
En slík hegðun á það iðulega til að elta orðhákana uppi og birtast á ný í verstu tilvikum, og þvælast fyrir metnaði þeirra og snobbi.
Mandelson talaði óvarlega á sínum tíma, þegar Donald Trump var við lok síns fyrra forsetatímabils, sem hann tapaði. Varla nokkrum manni datt í hug að Trump ætti nokkurn tíma afturkvæmt í Hvíta húsið.
Það hefur aðeins einum forseta tekist í bandarískum kosningum og er liðin rúm öld frá því að slíkt pólitískt þrekvirki var unnið þar vestra á ný.
...