Alþingi hefur ekki veitt fjárheimildir til byggingar áformaðrar brúar yfir Fossvog, en framkvæmdir við landfyllingar að brúnni sem þegar eru hafnar eru þó sagðar innan heimilda.

Svo segir Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar síðasta Alþingis. Í lotu 1 í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, frá Hamraborg að Hlemmi, sem kosta átti 8,2 milljarða króna, sé Fossvogsbrú inni en ekki sé minnst á hana í gildandi samgönguáætlun.

Samkvæmt áætlun á brúin að kosta álíka mikið og allur kaflinn frá Hamraborg að Hlemmi sem brúin er eigi að síður hluti af. » 6