Hákon Skúlason; Skúli Jóhannsson
Undanfarna daga hefur hrikt í stoðum raforkumála á Íslandi eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði 15. janúar síðastliðinn að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar skyldi fellt úr gildi. Dómarinn fylgdi þar bókstaflega óljósum ákvæðum laga um stjórn vatnamála nr. 36/2011 og segir að Umhverfisstofnun hafi skort lagastoð til að heimila breytingu á vatnshloti og því geti virkjunarleyfið ekki staðist. Hugtakið „vatnshlot“ er nýyrði og notað í vatnalögunum í stað „rennslisþáttar“ sem margir vatnsorkumenn kannast vel við. Þessi hringlandaháttur og klúður með hugtök hefur augsýnilega ruglað suma í ríminu.
Landsvirkjun berst nú fyrir einum af þeim virkjunarkostum í vatnsafli sem eru í orkunýtingarflokki Rammaáætlunar. Ef nýskipuð ríkisstjórn hyggst virkja á næstu árum endurnýjanlega náttúruorku sem
...