Fyrirtækjarekendur við Suðurlandsbraut lýsa miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur sem miða að því að koma borgarlínunni fyrir á svæðinu þar sem nú er Suðurlandsbraut.
Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að aðalskipulagi til ársins 2040 er gert ráð fyrir tveimur miðsettum akreinum fyrir borgarlínu og að akreinar fyrir almenna umferð verði aðeins ein í hvora átt. Leiðir það til helmingssamdráttar í aðgengi einkabílsins á svæðinu, verði verkefnið að veruleika.
Þá sýnir sniðmynd, sem fylgir fyrrnefndum drögum að borgarlínunni, að henni, ásamt göngu- og hjólastígum, verður ekki komið fyrir með öðru móti en því að sneiða stóran hluta af núverandi bílastæða við Suðurlandsbraut, meðal annars fyrir framan Hilton Reykjavik Nordica, höfuðstöðvar fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins Sýnar,
...