Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza urðu í gær fyrst til að keppa fyrir Íslands hönd í parakeppni á Evrópumóti í listhlaupi á skautum. Mótið fer fram í Tallinn í Eistlandi og þau tóku þátt í stutta prógramminu í gær. Þar enduðu þau í átjánda sæti af jafnmörgum keppendum með 48,58 stig. Sextán bestu komust áfram og þau Júlía og Manuel hefðu þurft að fá 51,69 stig til að komast í þann hóp. Sænskt par var rétt fyrir ofan þau í 17. sætinu.