Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótel Holts.
Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótel Holts.

Viðurkenningarhátíð FKA er stórviðburður í íslensku viðskiptalífi. Að þessu sinni var það Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótel Holts, sem hlaut Þakkarviðurkenningu FKA árið 2025. Verðlaunin eru veitt fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnandi í atvinnulífinu. Hrefna Sigfinnsdóttir framkvæmdastjóri Creditinfo hlaut FKA viðurkenninguna sem veitt er fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem er eða hefur verið konum í atvinnulífinu sérstök fyrirmynd. Arnhildur Pálmadóttir arkitekt, sem stýrir arkitekta- og nýsköpunarfyrirtækinu Lendager, hlaut Hvatningarverðlaun FKA í gær, en verðlaunin eru veitt félagskonu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.

Þess má geta að tilgangur Félags kvenna í atvinnulífinu er að styrkja stöðu kvenna í íslensku atvinnulífi og fjölga konum í stjórnunarstöðum og í eigin rekstri. Markmið félagsins er að styðja við vöxt

...