Andrea Sigurðardóttir
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti skipar sérstakan sess í hörtum Íslendinga og voru vinsældir þáttanna um Vigdísi á Rúv eftir því. Þjóðinni hefur þótt vænt um Vigdísi allt frá því hún braut blað í sögunni er hún var kjörin forseti Íslands fyrst kvenna.
Á þeim tíma voru menn uppteknir af því að hún væri einstæð móðir og jafnvel með einstætt brjóst. Sem kona í stjórnunarstöðu mætti hún með kornabarnið sitt í vinnuna og lét hlutina ganga upp. Í dag eru sem betur fer breyttir tímar, segja margir. En hafa þeir mikið breyst?
Í dag velta menn enn fyrir sér hvort einhleypum konum sé treystandi í ábyrgðarstöður. Það gamla stef heyrist í það minnsta á kaffistofum bæjarins í tengslum við formannskosningar Sjálfstæðisflokksins. Einstæðar
...