Dýpkunarskipið Tristão da Cunha er komið til Hornafjarðar þar sem það mun vinna að dýpkun í innsiglingunni að höfninni, Grynnslunum svonefndu. Vegagerðin auglýsti í fyrrasumar fyrir hönd Hornafjarðarhafnar verkið „Hornafjörður – dýpkun á Grynnslunum 2025“
Hornafjörður Á Höfn eru öflug útgerðarfyrirtæki. Því er mikilvægt að innsiglingin að höfninni sé ætíð greið og ekki hætta á að skip og bátar taki niðri.
Hornafjörður Á Höfn eru öflug útgerðarfyrirtæki. Því er mikilvægt að innsiglingin að höfninni sé ætíð greið og ekki hætta á að skip og bátar taki niðri. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Baksvið

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Dýpkunarskipið Tristão da Cunha er komið til Hornafjarðar þar sem það mun vinna að dýpkun í innsiglingunni að höfninni, Grynnslunum svonefndu.

Vegagerðin auglýsti í fyrrasumar fyrir hönd Hornafjarðarhafnar verkið „Hornafjörður – dýpkun á Grynnslunum 2025“.

Óskað var eftir dýpkunarskipi á tímagjaldi til að vinna að dýpkun í innsiglingarrennu þegar veðurskilyrði leyfðu. Verktími var frá 2. janúar til 15. mars 2025.

Eftirtaldir lögðu fram tilboð og eru stig bjóðenda í tæknilegu hæfi reiknuð skv. útboðsskilmálum, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar.

...