Guðrún Jónsdóttir, kölluð Rúna, fæddist 12. nóvember 1932. Hún lést 5. janúar 2025.
Útför hennar fór fram 20. janúar 2025.
Glæsifrú, gleðigjafi, listræn, kærleiksrík eru orð sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til Guðrúnar Jónsdóttur sem við kveðjum í dag. Guðrún var gæfukona, gekk sátt og æðrulaus í gegnum lífið með eiginmanninn Lárus sér við hlið sem elskaði hana og dáði. Börnin þeirra hugulsöm og elskurík.
Hvernig kynntist ég Guðrúnu; jú, hún var tengdaamma yngsta sonar míns Péturs Jakobs. Sem sagt amma Guðrúnar konunnar hans, sem er alnafna ömmu sinnar. Þær nöfnur áttu sannarlega fallegt samband.
Guðrún amma var kona sem kunni að njóta stundanna, hún horfði björt á hvern dag. Alltaf eitthvað að sýsla. Allt lék í höndunum á henni.
...