Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Janúar er að kveðja og febrúar rétt handan við hornið. Þótt margir séu farnir að hlakka til þess að sjá fyrstu vísbendingar um vorið í lofti, lætur veturinn enn finna fyrir sér – bæði með snjó og öðrum óþægilegum fylgifiskum sínum, eins og pestum.
Foreldrar leikskólabarna þekkja þetta allt of vel: sífelld veikindi sem hoppa milli kríla og halda heimilum í stöðugri sveiflu á milli hitamælis og tepotts. Inflúensan er komin á kreik og margir foreldrar standa frammi fyrir þeirri áskorun að hafa veikt barn heima, með misgóðum árangri í að skemmta litlum félögum sem oft eru fullir af orku.
Veikindavertíð barna var til umræðu í þættinum Ísland vaknar á K100 á dögunum, þegar Bolli Már, annar stjórnandi þáttarins, sagði frá því
...