Land heldur áfram að rísa við Svartsengi á Reykjanesskaga og kvikusöfnun heldur áfram á svæðinu. Er það mat sérfræðinga á Veðurstofu Íslands að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgist nú það magn sem kom upp í síðasta gosi. Þannig vaxa líkur á nýju kvikuhlaupi eða eldgosi á svæðinu. Veðurstofan varar við þeim möguleika að jarðskjálftavirkni verði ekki mikil fyrir næsta gos, og fyrirvarinn því minni. Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni hefur aukist hægt frá goslokum 9. desember 2024 en virknin er enn lítil. Þróunin síðasta árið sýnir að jarðskjálftavirkni fyrir kvikuhlaup hefur farið minnkandi með hverjum atburði. Veðurspár gera ráð fyrir vondu veðri næstu daga á Reykjanesskaga og hefur það áhrif á næmni mælanets Veðurstofu Íslands. Kann það að stytta viðbragðstíma.