Morð í almenningsgarði í Þýskalandi veldur uppnámi og eldveggurinn gegn AfD rofnar

Flokkurinn Annar kostur fyrir Þýskaland (AfD) flýgur hátt í skoðanakönnunum um þessar mundir. Tæpur mánuður er í kosningar í Þýskalandi og flokkurinn hefur næstmest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum.

Þótt flokkurinn hafi stuðning um fimmtungs kjósenda vilja aðrir flokkar í landinu ekki líta við honum.

Ein helsta ástæðan fyrir gengi AfD er útlendingamál og undanfarna daga hefur hitinn í þeirri umræðu verið að snarmagnast. Ástæðan er hnífstunguárás afgansks innflytjanda í almenningsgarði í Aschaffenburg í Bæjaralandi 22. janúar. Tveggja ára gamalt barn lést í árásinni og einn maður, sem hugðist stöðva árásarmanninn.

Það hefur valdið mikilli reiði í Þýskalandi að maðurinn hefði ekki átt að vera í landinu. Að auki hafði hann margfaldlega gert sig sekan um ofbeldi og ógnandi framgöngu. Engu að

...