Herdís Viggósdóttir fæddist í Rauðanesi á Mýrum 23. júní 1945. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 14. janúar 2025.

Foreldrar hennar voru Viggó Jónsson, f. 1908, d. 1999, og Ingveldur Rósa Guðjónsdóttir, f. 1916, d. 1993. Herdís var ein fimm systkina, systkini hennar eru Guðjón (látinn), Sigurbjörg, Rósa og Steinar (látinn).

Árið 1967 giftist hún Gunnari Jónssyni, f. 28.2. 1945, skipaafgreiðslumanni. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson, f. 11.3. 1904, d. 14.2. 2002, og Sigríður Sigurveig Sigurðardóttir, f. 31.5. 1903, d. 5.11. 1989. Þau skildu 1990.

Börn Herdísar og Gunnars eru þrjú: 1) Jón Viggó, f. 1969, maki Ástríður Elín Jónsdóttir, f. 1967. Sonur þeirra er Hrafn Viggó, f. 2013. Dætur Jóns frá fyrra sambandi eru a) Ingveldur Birna, f. 1994, b) Embla Katrín, f. 1996, c) Sesselja Malín,

...