Ég fékk áhugavert símtal í vikunni. Gamall kunningi kvaðst vera ósáttur við aðkomu Gunnars Magnússonar, fyrrverandi aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta, að leik Íslands og Króatíu á HM á dögunum
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ég fékk áhugavert símtal í vikunni.
Gamall kunningi kvaðst vera ósáttur við aðkomu Gunnars Magnússonar, fyrrverandi aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta, að leik Íslands og Króatíu á HM á dögunum.
Gunnar mun hafa leikgreint íslenska liðið fyrir Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska liðsins.
„Dagur er þjálfari Króata, þetta er hans vinna og ekkert eðlilegra en að hann leggi sig allan fram til sigurs gegn hvaða mótherjum sem er.
Gunnar er hins vegar fyrrverandi aðstoðarþjálfari landsliðsins, er starfandi sem þjálfari Aftureldingar í dag og hefur þjálfað marga af landsliðsmönnunum, eins og t.d. Þorstein
...