Hátæknifyrirtækið Hefring Marine tilkynnti á dögunum að gengið hefði frá samningi við norska björgunarfélagið, Redningsselskapet (RS), um kaup og uppsetningu á snjallsiglingakerfinu IMAS í öllum flota björgunarfélagsins
Hátækni Snjallsiglingatækni frá Hefring Marine nýtir nema og gervigreind til að veita skipstjórnendum ráðleggingar um siglinguna.
Hátækni Snjallsiglingatækni frá Hefring Marine nýtir nema og gervigreind til að veita skipstjórnendum ráðleggingar um siglinguna. — Ljósmynd/Redningsselskapet

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Hátæknifyrirtækið Hefring Marine tilkynnti á dögunum að gengið hefði frá samningi við norska björgunarfélagið, Redningsselskapet (RS), um kaup og uppsetningu á snjallsiglingakerfinu IMAS í öllum flota björgunarfélagsins.

„Þessi samningur markar mikilvægan áfanga í samstarfinu sem hófst árið 2020, þegar Redningsselskapet tók í notkun frumgerð IMAS-kerfis Hefring Marine. Í gegnum árin hefur samstarfið vaxið jafnt og þétt og nýta nú átta skip hið nýja kerfi,“ sagði í tilkynningunni.

RS upplýsir að áætlanir geri ráð fyrir að kerfinu verði komið fyrir í 50 björgunarskipum á árunum 2025 og 2026, en vekur jafnframt athygli á að markmiðið sé að koma kerfinu í öll 58 björgunarskip

...