Hreyfilistakonan Miriam Markl hefur um tveggja vikna skeið stundað rannsóknir á arkitektúr Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúss í gegnum hreyfingu og dans en lokaútkoman er gjörningur sem fluttur verður í kvöld, 30. janúar, á svonefndum Fimmtudeginum langa kl. 20 í Hafnarhúsi, að því er segir í tilkynningu. Þar á eftir, eða kl. 21, leiðir Styrmir Örn Guðmundsson myndlistarmaður fólk um sýninguna Hreinn Friðfinnsson: Endrum og sinnum í sérstakri leiðsöngvahljóðsögn sem er leiðsögn umvafin gjörningum, söng og dansi.
Á Kjarvalsstöðum verður einnig opið til kl. 22 í kvöld en þar verður Silja Bára Ómarsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, með leiðsögn um sýninguna Usla sem hefst kl. 20.