„Lífsstílssjúkdómar eru farnir að skapa verulegan þunga á allt heilbrigðiskerfið, það er kvillar sem eru ekki af völdum slysa eða sýkinga,“ segir Kjartan Hrafn Loftsson læknir. Sjúkdómar sem leiða af lífi og daglegri breytni fólks voru…
Skokk Hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna; að fá súrefni í lungun og blóðið á hreyfingu. Allt lifnar við.
Skokk Hreyfing er mikilvæg fyrir heilsuna; að fá súrefni í lungun og blóðið á hreyfingu. Allt lifnar við. — Morgunblaðið/Eggert

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Lífsstílssjúkdómar eru farnir að skapa verulegan þunga á allt heilbrigðiskerfið, það er kvillar sem eru ekki af völdum slysa eða sýkinga,“ segir Kjartan Hrafn Loftsson læknir. Sjúkdómar sem leiða af lífi og daglegri breytni fólks voru meðal þess sem til umfjöllunar var á Læknadögum. Þar hittust læknar landsins; fluttu erindi og rökræddu nýjustu viðhorf og þekkingu. Og þarna voru sjúkdómar sem stafa af lífsstíl sérstaklega í deiglu. Í því sambandi má nefna hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki af tegund 2, offitu, ýmis krabbamein, langvinna lungnasjúkdóma og jafnvel geðræna kvilla eins og þunglyndi og kvíða.

Kenna fólki hvað líkaminn þarf til að starfa

„Þetta eru sjúkdómar og kvillar sem stýrast mikið af umhverfi okkar

...