Franska tískuhúsið Chanel sýndi hátískulínuna (e. haute couture) fyrir árið 2025 í París fyrr í vikunni. Hátískuhluti fyrirtækisins var settur af stað af Gabrielle Chanel árið 1915 sem gera 110 ár síðan fyrstu hátískuflíkur Chanel litu dagsins ljós

Edda Gunnlaugsdóttir

eddag@mbl.is

Franska tískuhúsið Chanel sýndi hátískulínuna (e. haute couture) fyrir árið 2025 í París fyrr í vikunni. Hátískuhluti fyrirtækisins var settur af stað af Gabrielle Chanel árið 1915 sem gera 110 ár síðan fyrstu hátískuflíkur Chanel litu dagsins ljós. Enn þann dag í dag er verið að vinna með sömu einkenni, efni og jafnvel snið þó að það sé búið að færa það í nútímalegri stíl.

Orðin haute couture koma úr frönsku og þýða í raun hátíska og sérsaumur. Hátíska á rætur sínar að rekja aftur til 16. aldar og upphaflega átti hún við korselett sem var sérsaumað á eigandann. Á nítjándu öld varð París miðja hátískunnar og voru fötin gerð úr hágæðaefnum og saumuð af þeim allra færustu. Í dag er hátíska verndað starfsheiti og þurfa tískuhús að uppfylla ströng skilyrði ef þau vilja verða alvöru

...