Handknattleiksþjálfarinn Erlingur Richardsson segir að 9. sætið á HM karla sé ásættanlegur árangur. HSÍ þurfi hins vegar að fara að vinna eftir markvissari hugmyndafræði og þjálfarinn Snorri Steinn þyrfti að vera með fleiri plön í gangi í vörn og sókn. „En það er góð stemning í hópnum, Snorri virðist ná vel til leikmannanna, og ég skynja jákvæða áru yfir þessu liði,“ segir Erlingur. » 62