Enski knattspyrnumaðurinn Luke Shaw er farinn að æfa með liði Manchester United á nýjan leik eftir mikla fjarveru í vetur vegna meiðsla. Shaw hefur aðeins náð að spila þrjá leiki með Man. United á tímabilinu, síðast gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni 1. desember og kom þá inn á sem varamaður.
Um leið er samkeppnin fyrir vinstri bakvörðinn að harðna en Man. United er í þann veginn að ganga frá kaupum á Dananum Patrick Dorgu frá Lecce á Ítalíu.