Hrafnhildur Guðfinna Thoroddsen fæddist 18. apríl 1973. Hún lést 16. janúar 2025.
Útförin fór fram 24. janúar 2025.
Bídó var tápmikil ung stúlka þegar meinleg örlög urðu til þess að hún fékk ekki notið lífsins í sama mæli og aðrir. Hún lamaðist fyrir neðan mitti í hörmulegu bílslysi. Við tók þrotlaus barátta í endurhæfingu. Allt var gert til þess að finna lækningu við þeim mænuskaða sem hún varð fyrir. Auði og Bídó hefur tekist með dæmafárri hugprýði að vekja athygli á málefninu innanlands og langt út fyrir landsteinana.
Ég naut þess að koma reglulega í heimsókn á Nesbalann. Bídó sýndi mikla hugarró, baráttuþrek og jafnaðargeð. Æðraðist ekki yfir örlögum sínum. Náði að stunda vinnu þrátt fyrir fötlun sína og ók eigin bifreið sem
...