Arnarfjörður Dynjandi er mestur og frægastur fossa á Vestfjörðum.
Arnarfjörður Dynjandi er mestur og frægastur fossa á Vestfjörðum. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Þrjú tilboð bárust í verkið Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði, 3. áfangi, en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni sl. þriðjudag.

Borgarverk ehf. Borgarnesi bauð lægst eða krónur 1.482.160.020. Var það 84% af áætluðum verktakakostnaði, sem var krónur 1.761.824.081.

Suðurverk hf., Kópavogi, bauð krónur 1.820.690.000 og Ístak hf., Mosfellsbæ, krónur 2.253.948.316.

Verkið felst í nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 7,2 kílómetra kafla og um 0,8 km kafla á Dynjandavegi. Vegurinn er að mestu leyti byggður í nýju vegstæði. Innifalið er gerð keðjunarplans og áningarstaðar. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Verkinu skal að fullu lokið 30. september 2026.

Vegagerðin mun nú fara yfir tilboðin, þar sem meðal annars verður kannað

...