Félag trérennismiða á Íslandi hefur dafnað síðan Örn Ragnarsson tók við formennskunni 2021 og eru nú 294 manns í félaginu. Þar á meðal er 11 manna hópur, sem kallar sig Snúið og skorið og leigir saman aðstöðu í Dalshrauni í Hafnarfirði
Í Dalshrauni Örn Ragnarsson, Þorgeir Níelsson, Anna Lilja Jónsdóttir, Brynjólfur Garðarsson og Andrés Hafberg fyrr í vikunni.
Í Dalshrauni Örn Ragnarsson, Þorgeir Níelsson, Anna Lilja Jónsdóttir, Brynjólfur Garðarsson og Andrés Hafberg fyrr í vikunni. — Morgunblaðið/Eggert

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Félag trérennismiða á Íslandi hefur dafnað síðan Örn Ragnarsson tók við formennskunni 2021 og eru nú 294 manns í félaginu. Þar á meðal er 11 manna hópur, sem kallar sig Snúið og skorið og leigir saman aðstöðu í Dalshrauni í Hafnarfirði. Í hópnum eru níu karlar og tvær konur og vísar helmingur nafnsins til Önnu Lilju Jónsdóttur, formanns hópsins, sem er eini útskurðarmeistarinn í hópnum og hefur verið með frá byrjun 2012.

Örn hefur verið iðinn við að kynna fagið og félagið víða um land undanfarin ár. „Gangurinn er ljómandi og töluverð fjölgun hefur orðið í félaginu,“ segir hann. Örn er jafnframt stofnfélagi í fyrrnefnda hópnum í Hafnarfirði og notar hvert tækifæri til að vekja athygli á starfseminni. „Þetta er enda dásamlegt viðfangsefni.“

...