Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ýmsir hlutir, staðir og fyrirbæri eru fyrir löngu orðnir samofnir sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar. Má þar nefna sundlaugamenninguna, þorrablótin, kokteilsósuna, lopapeysuna, pulsu og kók og íslenska Brennivínið. Á laugardaginn verða 90 ár frá því hið síðastnefnda kom á markað. Hefur það allar götur síðan átt sér fastan sess í tilveru landsmanna – mismikinn vissulega eftir tímabilum – og átt sér þekkta aðdáendur á borð við Jóhannes Kjarval listmálara. Raunar hefur hróður þess fyrir löngu borist út fyrir landsteinana og meðal þeirra sem talað hafa opinskátt um aðdáun sína eru tveir af þekktari rokkurum samtímans; Dave Grohl og gítarleikarinn Slash.
Íslenska Brennivínið kom á markað þegar áfengisbannið var afnumið 1. febrúar 1935. Fyrst um sinn var það framleitt
...