Sumarið 2024 fær ekki háa einkunn hjá Veðurstofu Íslands í nýbirtu tíðarfarsyfirliti ársins. Ekki er úr vegi að rifja upp þetta leiðindasumar nú þegar landsmenn eru farnir að horfa vonaraugum til sumarsins 2025
Miðborgin Það var algeng sjón í fyrrasumar að sjá erlenda ferðamenn innpakkaða í plast. Sem betur fer fengu ferðamennirnir einn og einn sólardag.
Miðborgin Það var algeng sjón í fyrrasumar að sjá erlenda ferðamenn innpakkaða í plast. Sem betur fer fengu ferðamennirnir einn og einn sólardag. — Morgunblaðið/Eggert

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Sumarið 2024 fær ekki háa einkunn hjá Veðurstofu Íslands í nýbirtu tíðarfarsyfirliti ársins. Ekki er úr vegi að rifja upp þetta leiðindasumar nú þegar landsmenn eru farnir að horfa vonaraugum til sumarsins 2025.

Sumarið (júní til ágúst) í fyrra var úrkomusamt um land allt. Í yfirlitinu kemur vel fram að sumarið var sérstaklega vætusamt á Vestur- og Norðurlandi. Þar var sumarið víða á meðal þeirra blautustu frá upphafi mælinga.

Vætutíð sumarsins olli töluverðum vandræðum. Miklir vatnavextir í ám og lækjum voru tíðir og skriður féllu víða. Eitthvað var um að bændur lentu í erfiðleikum með ræktun og heyskap vegna bleytunnar. Júlí var sérlega úrkomusamur á Vesturlandi, víða sá úrkomusamasti þar frá upphafi mælinga.

...