Íslenska karlalandsliðið í handbolta hafnaði í 9. sæti á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu, Danmörku og Noregi. Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og komst áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga eða fjögur stig
Hlutverk Gísli Þorgeir Kristjánsson, Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Janus Daði Smárason fagna.
Hlutverk Gísli Þorgeir Kristjánsson, Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson og Janus Daði Smárason fagna. — Morgunblaið/Eyþór

HM 2025

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hafnaði í 9. sæti á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu, Danmörku og Noregi.

Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og komst áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga eða fjögur stig.

Liðið lagði Egyptaland og Argentínu í milliriðlinum en tapaði fyrir Króatíu sem gerði það að verkum að Króatía, Egyptaland og Ísland enduðu öll með átta stig. Króatía og Egyptaland fóru áfram í átta liða úrslitin þar sem liðin voru með bestu innbyrðismarkatöluna en Ísland sat eftir með sárt ennið.

„Ef ég man rétt var okkur spáð í kringum

...