Edda Margrét Jensdóttir fæddist 30. janúar 1955 á Landspítalanum í Reykjavík og ólst upp á Hagamel. Hún dvaldi á sumrin á Hvoli í Borgarfirði eystra frá fimm mánaða aldri til níu ára aldurs. „Þar var hvorki rennandi vatn né rafmagn, hvað þá…
Í Notodden Edda ásamt fjölskyldu Brynhildar við stafkirkjuna Heddal.
Í Notodden Edda ásamt fjölskyldu Brynhildar við stafkirkjuna Heddal.

Edda Margrét Jensdóttir fæddist 30. janúar 1955 á Landspítalanum í Reykjavík og ólst upp á Hagamel.

Hún dvaldi á sumrin á Hvoli í Borgarfirði eystra frá fimm mánaða aldri til níu ára aldurs. „Þar var hvorki rennandi vatn né rafmagn, hvað þá salerni, bærinn var gamall torfbær með forskalaðri framhlið. Ég náði þarna smá glugga inn í eldgamla tíma og þetta ásamt náttúrufegurðinni hefur sannarlega sett svip sinn á mig. Næstu sumur vorum við mamma á Eskifirði þar sem hún vann sem matráðskona og ég fékk að fara í síld.“

Edda gekk í Melaskóla og Hagaskóla. „Ég fór síðan í vinnu í leikskóla um sumarið og ílengdist þar þar til að í ljós kom að þetta var vísir að ævistarfinu.“

Hún útskrifaðist úr Fósturskóla Íslands 1976 og fór síðan í framhaldsnám í stjórnun og síðar í nám

...