Eftir fannfergi og frostakafla að undanförnu eru veðrabrigði í loftinu. Hitastig fer lækkandi og strax í dag fer að rigna á láglendi með hvassri suðaustanátt. Er fólk hvatt til að huga að niðurföllum við hús og götur er hálkan brestur á með tilheyrandi bleytu.
Varar Veðurstofan og Vegagerðin við erfiðum akstursskilyrðum þar sem víða verði hált á meðan snjó og klaka leysir. Hætt er við að loka þurfi fjallvegum.
Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun í dag fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð og miðhálendið, og gular viðvaranir gilda fyrir allt landið á morgun. Gera veðurspár ráð fyrir lægðagangi, með hvössum sunnanáttum og stormi eða roki og úrhellisrigningu á sunnan- og vestanverðu landinu.