Við upplifum tímann á mismunandi hátt. Öll höfum við heyrt um aldurstengda upplifun en það er ekki það sem er að fanga hug minn.
Íris Mjöll Gylfadóttir
Íris Mjöll Gylfadóttir

Íris Mjöll Gylfadóttir

Tíminn er ósýnilegur, við getum ekki snert og ekki séð hann, en samt erum við stöðugt minnt á þennan (ó)vin okkar sem hefur svo ótrúlega mikil áhrif
á huga okkar og líkama.

Tíminn er takmörkuð auðlind sem við fáum gefins þegar við komum í þennan heim, það þýðir að hvert og eitt okkar fær takmarkaðan tíma hér á jörðinni. Við getum ekki slegist um hann eða stolið tíma hvert frá öðru því enginn sér hann og enginn veit hversu langan tíma hann á, þetta er sjálfsagt hið besta mál.

Þessi staðreynd ein og sér gerir tímann hér á jörðinni að einu því dýrmætasta sem við eigum. Það er því brýnt að kynnast tímanum okkar vel og skilja hvernig við sem persónur getum notið hans og nýtt sem best.

Við höfum fundið leið til þess að mæla tímann

...