Öruggt Mathias Gidsel og liðsfélagar hans hjá Danmörku fagna öruggum sigri á Brasilíu í átta liða úrslitum HM 2025 í handbolta í gær.
Öruggt Mathias Gidsel og liðsfélagar hans hjá Danmörku fagna öruggum sigri á Brasilíu í átta liða úrslitum HM 2025 í handbolta í gær. — AFP/Stian Lysberg Solum

Ríkjandi heimsmeistarar Danmerkur höfðu auðveldlega betur gegn Brasilíu, 33:21, í átta liða úrslitum HM karla í handbolta í Ósló í Noregi í gær. Danmörk hefur orðið heimsmeistari í síðustu þrjú skipti. Engri annarri þjóð hefur tekist að verða heimsmeistari þrisvar í röð og freista Danir þess nú að fjölga skiptunum í fjögur. Í undanúrslitum annað kvöld mætir Danmörk annaðhvort Portúgal eða lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi. Leik Portúgals og Þýskalands var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun.

Frakkland og lærisveinar Dags Sigurðssonar í Króatíu mætast í fyrri undanúrslitaleik heimsmeistaramótsins í Zagreb í kvöld.

Í leiknum í gær voru Rasmus Lauge, Mathias Gidsel og Emil Jakobsen markahæstir hjá Danmörku með sex mörk hver.

Markahæstur í leiknum

...