„Ég mun koma með frumvarp, væntanlega strax á fyrsta degi nýs Alþingis, og vonandi getum við fjallað um það og afgreitt á fáum sólarhringum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við…

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Ég mun koma með frumvarp, væntanlega strax á fyrsta degi nýs Alþingis, og vonandi getum við fjallað um það og afgreitt á fáum sólarhringum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið, spurður hvernig hann hyggist bregðast við óvissuástandi í orkumálum í kjölfar dóms í héraði sem felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi.

„Ég vona að stjórnarandstaðan verði samvinnuþýð,“ segir hann, en í sl. viku lýstu fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna þriggja yfir stuðningi við setningu bráðabirgðalaga til að höggva á þann hnút sem Hvammsvirkjun er í vegna dómsins.

„Ég geri ráð fyrir að leggja frumvarpið fyrir ríkisstjórn í næstu viku og þá munum við kynna nákvæmlega

...