Við Laugaveg 71 stendur reisulegt hús með átta íbúðum sem leigðar hafa verið til ferðamanna í skammtímaleigu. Nú hyggst eigandinn, Svala apartments ehf., breyta þeim í almennar íbúðir til langtímaleigu og hefur sent fyrirspurn þess efnis til Reykjavíkurborgar
Laugavegur 71 Áberandi hús við eina helstu götu borgarinnar. Mikil uppbygging hefur verið á næstu lóðum austan hússins. Ein er þó óbyggð.
Laugavegur 71 Áberandi hús við eina helstu götu borgarinnar. Mikil uppbygging hefur verið á næstu lóðum austan hússins. Ein er þó óbyggð. — Morgunblaðið/sisi

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Við Laugaveg 71 stendur reisulegt hús með átta íbúðum sem leigðar hafa verið til ferðamanna í skammtímaleigu. Nú hyggst eigandinn, Svala apartments ehf., breyta þeim í almennar íbúðir til langtímaleigu og hefur sent fyrirspurn þess efnis til Reykjavíkurborgar.

Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa hinn 9. janúar sl. var fyrirspurn Svala apartments ehf. tekin til meðferðar og jafnframt lögð fram umsögn verkefnastjóra skipulagsfulltrúa.

Húsið á lóð nr. 71 við Laugaveg er fjórlyft hús byggt árið 1978 skv. fasteignaskrá. Fasteignamat þess er tæpar 500 milljónir. Í húsinu er verslun og þjónusta á jarðhæð en hótelíbúðir á efri hæðum. Óskað var eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess að fá að breyta þeim í almennar

...