„Við, fyrrverandi starfsfólk leikskólans Maríuborgar, vísum ásökunum Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur formanns skóla og frístundaráðs Reykjavíkur alfarið á bug þar sem þær eiga sér enga stoð. Leikskólastjórinn hefur starfað á Maríuborg síðan í ágúst 2013
Maríuborg Tuttugu starfsmenn leikskólans hafa hætt þar störfum vegna ástandsins og sjö eru í veikindaleyfi.
Maríuborg Tuttugu starfsmenn leikskólans hafa hætt þar störfum vegna ástandsins og sjö eru í veikindaleyfi. — Morgunblaðið/Karítas

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Við, fyrrverandi starfsfólk leikskólans Maríuborgar, vísum ásökunum Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur formanns skóla og frístundaráðs Reykjavíkur alfarið á bug þar sem þær eiga sér enga stoð. Leikskólastjórinn hefur starfað á Maríuborg síðan í ágúst 2013. Þegar hún tók tímabundið við stöðunni árið 2023 hafði hún starfað í leikskólanum í 10 ár með stöðugum starfsmannahópi og þekkti vinnuumhverfið vel, þannig að engin óvissa var um hvað var í vændum.“

Svo segir í yfirlýsingu fyrrverandi starfsfólks leikskólans Maríuborgar sem fyrrverandi starfsmaður, sem vill ekki láta nafn síns getið, sendi blaðinu fyrir þeirra hönd. Þar er brugðist við ummælum Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur, formanns skóla og frístundaráðs borgarinnar í Morgunblaðinu sl. laugardag. Þar kom m.a. fram

...