Skoðanakönnun sem danska blaðið Berlingske birti í gær sýnir að mikill meirihluti Grænlendinga, eða rúmlega 85%, er andvígur því að Grænland gangi úr ríkjasambandinu við Danmörku og verði í staðinn hluti af Bandaríkjunum
Baksvið
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Skoðanakönnun sem danska blaðið Berlingske birti í gær sýnir að mikill meirihluti Grænlendinga, eða rúmlega 85%, er andvígur því að Grænland gangi úr ríkjasambandinu við Danmörku og verði í staðinn hluti af Bandaríkjunum.
Samkvæmt könnuninni vilja 6% Grænlendinga gera samning við Bandaríkin en 9% eru óákveðin.
Yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að hann vilji að Grænland verði hluti af Bandaríkjunum vegna mikilvægis landsins í varnarmálum og hótanir um að beita til þess vopnavaldi eða viðskiptaþvingunum hafa valdið uppnámi í Grænlandi og Danmörku. Í könnuninni sagðist tæplega helmingur aðspurðra, eða 43%, telja áhuga Trumps á Grænlandi vera ógnun en
...