Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist í samtali við Morgunblaðið eiga í nánum samskiptum við kollega sína á Norðurlöndum, þótt hún hafi ekki verið við kvöldverð norrænna leiðtoga á sunnudag. Athygli vakti að forsætisráðherra Íslands var ekki …
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist í samtali við Morgunblaðið eiga í nánum samskiptum við kollega sína á Norðurlöndum, þótt hún hafi ekki verið við kvöldverð norrænna leiðtoga á sunnudag.
Athygli vakti að forsætisráðherra Íslands var ekki meðal borðgesta Mette Frederiksen, en það voru Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs, Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Alexander Stubb Finnlandsforseti til að ræða norræn varnar- og öryggismál.
„Í þessu tilviki kemur samdægurs upp sá möguleiki að hittast í kvöldverði hjá danska forsætisráðherranum. Við fengum meldingu um það upp úr hádegi sama dag og kvöldverðurinn átti að eiga sér stað.“
...